Ungir fumkvöðlar ... framtíðin er þeirra!
Fyrirtækjasmiðjan er heitið á frumkvöðlanámskeiði sem kennt er í átta framhaldsskólum. Verkefnið spannar 13 vikur og á þeim tíma stofna þátttakendur fyrirtæki, vinna viðskiptaáætlun og markaðskannanir, selja hlutafé, framleiða og selja vörur og þjónustu og loka síðan fyrirtækinu að 13 vikum liðnum með ígildi ársreiknings.
Um helgina komu allir hóparnir 25 saman í Smáralind og kynntu „fyrirtæki sín“ fyrir gestum og gangandi - og það er alveg morgunljóst að í þessum hópi eru frumkvöðlar sem eiga eftir að láta til sín taka. Og það er til mikils að vinna því að sá hópur sem á það verkefni sem þykir skara fram úr mun keppa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni Ungra Frumkvöðla í Noregi í sumar ásamt keppendum frá um 37 löndum í Evrópu.
Ungir Frumkvöðlar á Islandi eru meiður af alþjóðlegum félagasamtökum sem heita Junior Achievement - Yong Enterprice og er markmið þeirra að byggja brú á milli atvinnulífs og skóla og bjóða án endurgjalds gæða námsefni til að auka við menntun tengda viðskiptum, siðferði og nýsköpun.
Linkur fyrir þá sem vilja vita meira
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra heimsótti ungu frumkvöðlana.