Hoppa yfir valmynd
29. mars 2011 Atvinnuvegaráðuneytið

Viðbrögð Íslands við viðskiptabanni Evrópusambandsins á selaafurðum

Nr. 11/2011

Viðbrögð Íslands við viðskiptabanni Evrópusambandsins á selaafurðum

Á fundi deilumálanefndar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO), 25. mars 2011, lýsti Ísland yfir stuðningi við Kanada í máli þess gegn Evrópusambandinu (ESB) varðandi ágreining um reglugerð ESB nr. 1007/2009 sem bannar innflutning og viðskipti með selaafurðir á innri markaði ESB. Þá óskaði Ísland jafnframt eftir því að taka þátt í málarekstrinum sem þriðji aðili. Ísland lýsti einnig yfir stuðningi við beiðni Noregs um myndun kærunefndar vegna ágreinings um ofangreinda reglugerð; ESB kom á fundinum í veg fyrir myndun þeirrar kærunefndar, en samkvæmt málsmeðferðarreglum WTO er slíkt heimilt þegar beiðni um kærunefnd er tekin fyrir í fyrsta sinn.

Þessi ákvörðun er fullu í samræmi við fyrri yfirlýsingar Íslands á alþjóðavettvangi en í september sl. var Ísland aðili að sameiginlegri yfirlýsingu á vettvangi Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO) ásamt Noregi, Grænlandi, Færeyjum, Rússlandi, Japan og Kanada, þar sem innflutningsbanninu var mótmælt, þar sem það græfi undan alþjóðlega viðurkenndum grundvallarreglum um verndun og nýtingu sjávarauðlinda í Norður-Atlantshafi. Ennfremur var í yfirlýsingunni bent á að bannið gengi gegn rétti manna til þess að nýta náttúruauðlindir á ábyrgan og sjálfbæran hátt, auk þess að nýta sér alþjóðleg viðskiptatækifæri. Einnig var undirstrikað að verndun og nýting lifandi auðlinda hafsins ætti að taka mið af vísindalegum rannsóknarniðurstöðum og því talið að innflutningsbann ESB væri mikil afturför fyrir sjálfbæra þróun og alþjóleg viðskipti. 

Í apríl 2009 sendi sendiráð Íslands í Brussel skjal til aðildarríkja ESB, framkvæmdastjórnar ESB og fastanefndar Tékklands, þar sem fram kom andstaða Íslands við að bann yrði sett við sölu selaafurða innan sambandsins. Jafnframt sendi þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, bréf til Joe Borg, framkvæmdastjóra sjávarútvegsmála ESB, þar sem áhyggjur af yfirvofandi lagasetningu og rök Íslands gegn því að banni yrði komið á með viðskipti með selaafurðir voru sett fram.

Það var einnig á ráðherrafundi sjávarútvegsráðherra við Norður Atlantshaf (NAFMC) í Kanada í júlí sl. sem sjávarútvegs-og lanbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, lýsti yfir stuðningi sínum við fyrirhugaðan málatilbúnað Kanada vegna málsins á vettvangi WTO.

Þótt  þessi deila snúist um viðskipti með selaafurðir þá snýst þessi deila í reynd um stærra mál, það grundvallaratriði að nýti þjóðir náttúruauðlindir sínar með sjálfbærum hætti þá hafi þær rétt til að eiga viðskipti með þær á alþjóðavettvangi.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta