Athugasemd við frétt um fjarveru ráðherra
Vegna fréttar í Fréttablaðinu í 29. mars 2011 um fjarveru Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á fundi Samtaka atvinnulífsins og Landssambands íslenskra útvegsmanna vill ráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.:
Undirritaður tók fram í samtali við fréttamann Fréttablaðsins í gær að engar upplýsingar lægju fyrir um fund þennan í ráðuneytinu. Það er rétt enda er nú staðfest að um óformlegan fund var að ræða sem ekki var boðaður eða bókaður með venjubundnum hætti.
Jafnframt hefur forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir komið þeim upplýsingum til upplýsingafulltrúa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis að Jón Bjarnason hafi þegar á laugardag boðað lögmæt forföll frá mætingu á nefndan fund vegna ráðherrafundar í Kaupmannahöfn. Óstaðfestar fréttir Fréttablaðsins um að fjarvera sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi komið öðrum ráðherrum á óvart eiga því ekki við rök að styðjast.