Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2011 Atvinnuvegaráðuneytið

Vinnuhópur um eflingu alifulgaræktar á Íslandi skilar skýrslu.

alifuglahópur 2011
alifuglahópur 2011

 

Nr. 16/2011

Vinnuhópur um eflingu alifulgaræktar á Íslandi skilar skýrslu.

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra veitti í dag viðtöku skýrslu starfshóps ráðuneytisins um eflingu alifuglaræktar á Íslandi.

Þar koma meðal annars fram þau viðhorf að alifuglarækt eigi að reka á sömu forsendum og aðrar búgreinar í landinu, með tilliti til fæðuöryggis, umhverfissjónarmiða, hollustu afurða og þeirra samfélagsáhrifa sem búgreinin hefur. Framleiðsla kjúklinga og eggja eru snar þáttur í fæðu Íslendinga, skapar umtalsverða atvinnu og virðisauka í landinu ásamt því að auka öryggi á markaði fyrir neytendur.

Nefndin vekur athygli á að íslenskir framleiðendur í greininni eru mjög fáir, flestir staðsettir við höfuðborgarsvæðið og þeim hefur fækkað mikið á undanförnum áratugum. Það er álit nefndarinnar að þessi staða skapi fleiri vandamál vegna sjúkdóma og nýtingar á úrgangi en væri ef búin væru fleiri og dreifðari landið.

 Þrátt fyrir þetta er staða í sjúkdómavörnum góð á Íslandi enda reglurnar strangari en í öðrum löndum Evrópu.

Þá bendir nefndin á að nær öll framleiðsla kjúklinga og eggja byggir á innfluttu fóðri og að það sé tæpast í samræmi við kröfur um matvælaöryggi. Nefndin telur að mögulegt sé að nota innlent fóður í meira mæli en nú er og þannig hægt að spara gjaldeyri og gera greinina minna háða innflutningi.

Loks gerir nefndin tillögu um endurskoðun á reglugerð um aðbúnað og sjúkdómavarnir í alifuglarækt sem og nauðsyn á leiðbeiningaþjónustu í greininni. 

Nánari upplýsingar veitir formaður starfshópsins, Björn Halldórsson í síma 861 2840.

Skýrsla vinnuhóps um eflingu alifuglaræktar á Íslandi.

 

alifuglahópur 2011

Á myndinni er starfshópurinn ásamt Jóni Bjarnasyni ráðherra, Níels Árni Lund skrifstofustjóri í ráðuneytinu, Jóhannes Sveinbjörnsson dósent hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Þorsteinn Sigmundsson, formaður Félags eggjaframleiðenda, Björn Halldórsson bóndi á Akri í Vopnafirði sem var formaður hópsins, Skúli Einarsson formaður Félags kjúklingabænda, Brigitte Brugge, dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir aðstoðarmaður ráðherra.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta