Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2011 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta

Mánudaginn 20. júní 2011, rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012.

Samtals bárust umsóknir frá 6 aðilum um tollkvótann. Einungis kom til útboðs á tollkvótum í alifuglakjöti, þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Til úthlutunar vegna innflutnings á nautgripakjöti voru 95.000 kg. Úthlutað var til þriggja fyrirtækja, samtals 65.000 kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á svínakjöti voru 64.000 kg. Úthlutað var til þriggja fyrirtækja, samtals 45.000 kg.

Þrjár umsóknir bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, á vörulið 0207.1xxx 0207.2xxx og 0207.3xxx, samtals 98.000 kg Til úthlutunar var 59.000 kg. og var því óskað eftir tilboðum. Eitt tilboð barst á meðalverðinu 1 kr./kg.  Hæsta boð var 1 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á öðru kjöti voru 12.000 kg. Úthlutað var til tveggja fyrirtækja, samtals 6.000 kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á unnum kjötvörum voru 86.000 kg. Úthlutað var til fimm fyrirtækja, samtals 70.300 kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á smjöri voru 53.000 kg. Úthlutað var til eins fyrirtækis, samtals 1.000 kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á ostum voru 119.000 kg. Úthlutað var til fjögurra fyrirtækja, samtals 50.000 kg.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Kjöt af nautgripakyni fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  15.000 Innnes ehf
  40.000 Kaupás hf
  10.000  Viðbót ehf

 

Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  10.000 Innnes ehf
  30.000 Kaupás hf
    5.000 Viðbót ehf

 

Kjöt af alifuglum fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  31.000 Innnes ehf.

 

Annað kjöt fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012

Magn (kg) Tilboðsgjafi
   3.000 Kaupás hf.
   3.000 Viðbót ehf.

 

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  18.000 Innnes ehf
  25.000 Kaupás hf
  25.000 Sólstjarnan ehf
       300 Stankó ehf
    2.000 Viðbót ehf.

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  10.000 Innnes ehf
    3.000 K.K.Karlsson ehf
  15.000 Kaupás hf
  22.000 Sólstjarnan ehf

 

Smjör fyrir tímabilið júlí 2011 – júní 2012

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  1.000 Kaupás hf.

 

 

Reykjavík, 30. júní 2011

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum