Hoppa yfir valmynd
22. september 2011 Innviðaráðuneytið

Viljayfirlýsing um tíu ára tilraunaverkefni í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu

Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing innanríkisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um að vinna að samningi um 10 ára tilraunaverkefni um almenningssamgöngur.

Ögmundur Jónasson og Ásgerður Halldórsdóttir undirrita viljayfirlýsinguna.
Ögmundur Jónasson og Ásgerður Halldórsdóttir undirrita viljayfirlýsinguna.

Viljayfirlýsingin snýst um að gerður verði samningur um uppbyggingu og rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með markvissum stuðningsaðgerðum og frestun stórra vegaframkvæmda. Þá skal einnig litið til almenningssamgangna sem tengja höfuðborgarsvæðið við nágrannasveitarfélögin sem eru innan sama atvinnusvæðis.

Viljayfirlýsingin handsöluð.

Viljayfirlýsinguna undirrituðu þau Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, og Eiríkur Bjarnason, forstöðumaður áætlanadeildar hjá Vegagerðinni. Fyrir aftan þau standa: Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu, Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðstýra hjá Reykjavíkurborg, Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Ögmundur Hrafn Magnússon, lögfræðingur í fjármálaráðuneytingu, og Þorsteinn R. Hermannsson, verkfræðingur í innanríkisráðuneytinu.

Við undirritunina sagði Ögmundur Jónasson þessa yfirlýsingu marka tímamót og Ásgerður Halldórsdóttir sagði mikilvægt að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sameinuðust í þessu átaki.

Starfshópur innanríkisráðuneytisins, Vegagerðarinnar og fjármálaráðuneytisins og fulltrúar SSH vinni að samningi sem liggi fyrir haustið 2011. Í samningsdrögum verði m.a. sett fram mælanleg samningsmarkmið fyrir framvindumat tilraunaverkefnisins, tillögur að kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga, skilgreining stórra vegaframkvæmda sem frestast o.fl. Viljayfirlýsing þessi verði hluti af tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2011-2022 sem stefnt er að því að leggja fyrir Alþingi nú í haust.

Samningsdrög ofangreindra aðila byggi á drögum samgönguráðs að stefnumótun vegna samgönguáætlunar 2011-2022 frá maí 2011 en þar segir:

„Við vinnslu sjálfbærrar samgönguáætlunar með sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og áhrifasvæði þess verði gengið út frá þeim forsendum að ríkið skuldbindi sig til að leggja fjármagn í rekstur almenningssamgangna á svæðinu í 10 ára tilraunaverkefni ef á móti koma skuldbindingar sveitarfélaga um mótframlag, markvissar stuðningsaðgerðir og sátt um frestun stórra vegaframkvæmda á höfuðborgar­svæðinu. Framlag ríkisins komi af kolefnisgjaldi sem ríkið innheimtir af jarðefnaeldsneyti og verði af stærðargráðunni 1.000 millj. kr. á ári. Meginmarkmiðið verði að a.m.k. tvöfalda hlutdeild almennings­samgangna í öllum ferðum sem farnar eru á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu. Árangur af þessu tilraunaverkefni verði metinn í framvindumati á tveggja ára fresti og framlög verði þá endurskoðuð.“

Viljayfirlýsing og samningsdrög eru með fyrirvara um fjárlög og niðurstöður í umræðum og afgreiðslu Alþingis á samgönguáætlun.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum