Hoppa yfir valmynd
22. desember 2011 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum vegna tímabilið janúar – júní 2012

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum vegna tímabilið janúar – júní 2012

 

Föstudaginn 16. desember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2012.

 

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.700 stk. á meðalverðinu 24 kr./stk. Hæsta boð var 140 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 29 kr./stk.

 

Tvö tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 3.500 stk. á meðalverðinu 19 kr./stk.  Hæsta boð var 140 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 22 kr./stk.

 

Ein umsókn barst um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 2.000 stk., sem er sama magn og í boði var.  Úthlutað var án útboðs.

 

Tvö tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.300 stk., á meðalverðinu 7 kr./stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk  Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 7 kr./stk.

 

Tvær umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 70.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   500 Gróðurvörur ehf
1.700 Samasem ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   500  Gróðurvörur ehf
2.500 Samasem ehf

 

Rósir janúar – júní 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
  2.000 Samasem ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
300 Gróðurvörur ehf
                 8.700 Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
10.000 Gróðurvörur ehf
60.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 22. desember 2011  

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum