Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

Skilafrestur umsókna í Þróunarsjóð framlengdur

Vegna mikils álags á umsóknarkerfi Nýsköpunarmiðstöðvar og bilunar hefur kerfið legið niðri frá hádegi í dag. Skilafrestur umsókna er því framlengdur til kl. 16:00 miðvikudaginn 11. janúar. Umsækjendur eru hvattir til að reyna að senda umsóknir sínar inn í dag og kvöld til að dreifa álagi á kerfið. Frekari upplýsingar veitir Sigurður Steingrímsson í síma 894 9330 og Sigríður Kristjánsdóttir í síma 861 4913.

Markmið þróunarsjóðsins er að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka arðsemi fyrirtækja. Samtals verða veittir styrkir úr sjóðnum að upphæð 35 milljónir kr. Annars vegar verður stutt við verkefni fyrirtækja sem lengt geta ferðamannatímann á tilteknum svæðum og hins vegar við samstarfsverkefni fyrirtækja sem vilja sameiginlega þróa þjónustu sem haft getur sömu áhrif víðar um landið. Í umsókn þurfa að koma fram skýrar hugmyndir um þá þjónustu og upplifun sem skila eiga í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum. Verkefnin verða að koma til framkvæmda innan þriggja ára frá því að styrkur er veittur. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2012 og er gert ráð fyrir að styrkir verði veittir í febrúar.

Allar nánari upplýsingar og umsóknarform er að finna hér eða á heimasíðu Landsbankans: www.landsbankinn.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta