Breyting á reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði.
Breyting á reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð sem heimilar Matvælastofnun með ótvíræðum hætti að birta einstakar niðurstöður greininga vegna eftirlits með áburði sem er á markaði hérlendis. Heimildin nær til tilvika sem svo eru skilgreind í reglugerðinni:
a. „Þegar niðurstöður úr efna- og örverugreiningum leiða í ljós að áburður er ekki í samræmi við vörulýsingu eða ákvæði laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru eða reglugerða settra á grundvelli þeirra.
b. Þegar niðurstöður leiða til þess að Matvælastofnun gefur fyrirmæli um afmengun, takmarkar framleiðslu eða markaðssetningu, leggur hald á eða fer fram á förgun á áburði.“
Þá segir ennfremur í reglugerðinni:
„Birting niðurstaðna skal fara fram eins fljótt og unnt er á heimasíðu stofnunarinnar. Jafnframt er Matvælastofnun með sama hætti heimilt að birta almennar upplýsingar um aðgerðir hennar eða áburðarfyrirtækja þegar áburður uppfyllir ekki kröfur um öryggi vörunnar.“
Loks er kveðið á um að stjórnsýslukæra aðila máls til ráðherra fresti ekki birtingu Matvælastofnunar.