Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

Eftirgjöf skulda yfir einum milljarði króna

Eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar ber að taka saman og birta greinargerð með tölfræðilegum upplýsingum um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja þar sem eftirgjöf skulda nemur hærri fjárhæð en 1 milljarði króna, sbr. 4. gr. og 5. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 307/2010 um störf eftirlitsnefndar sbr. lög nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.

Í greinargerðinni skal tiltaka upplýsingar vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar. Greint skal frá fjölda fyrirtækja sem sætt hafa fjárhagslegri endurskipulagningu, hvers konar fyrirtæki eiga í hlut og á hvaða sviðum atvinnulífsins  þau starfa. Jafnframt skal veita upplýsingar um heildarfjárhæð eftirgjafar skulda í hverjum flokki. Séu mjög fá fyrirtæki í tilteknum flokkum skal flokkun vera með þeim hætti að ekki sé hægt að rekja upplýsingarnar til einstakra fyrirtækja, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar.

Meðfylgjandi er greinargerð um endurskipulagningu fyrirtækja til og  með 30. september 2011 þar sem eftirgjöf skulda nemur hærri fjárhæð en 1 milljarði króna. Áður hefur nefndin birt upplýsingar um eftirgjöf skulda yfir 1 milljarði króna í skýrslum sínum frá september 2010 og september 2011 og eru þær aðgengilegar á vef ráðuneytisins.

Greinargerð: Eftirgjöf skulda yfir einum milljarði króna til og með 30. september 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta