115 umsóknir um styrk úr Þróunarsjóði Landsbanka og iðnaðarráðuneytis
Það er greinilega mikill áhugi hjá aðilum í ferðaþjónustunni fyrir Þróunarsjóðnum en markmið hans er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fer fram í febrúar en þá verða alls 35 m.kr. til úthlutunar.
Þróunarsjóðurinn var stofnaður í tengslum við verkefnið Ísland allt árið og leggja Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið fram fjármagn í sjóðinn. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fer fram í febrúar og bárust alls 115 umsóknir. Til úthlutunar eru 35 m.kr.
Þróunarsjóðnum er ætlað að taka virkan þátt í uppbyggingu fyrirtækja og verkefna í ferðaþjónustu sem skapað geta heilsársstörf. Studd verða annars vegar
verkefni einstakra fyrirtækja sem haft geta áhrif til lengingarferðamannatímabils á tilteknum svæðum og hins vegar samstarfsverkefni fyrirtækja sem sameiginlega vilja þróa upplifanir sem geta orðið til þess að lengja ferðamannatímabilið.