Við eigum að stefna að því að auka verðmæti hvers þorsks
úr 2.200 kr. í 4.000 kr.
„Sameinum kraftana til nýrrar sóknar“ var yfirskriftin á kraftmiklum fundi um klasa og klasasamstarf og þar
fengu fundargestir sannarlega ástæður til að horfa björtum augum til framtíðar.
Það kom m.a. fram í máli forsvarsmanns Íslenska sjavarklasans að nú þegar væru Íslendingar sú þjóð sem
fengi mest verðmæti úr hverjum veiddum þorski, eða um 2.200 kr. fyrir vænan 5 kg. fisk. Sambærileg tala fyrir þorsk veiddan í öðrum löndum Evrópu er um 1.700 kr.
En þrátt fyrir þennan frábæra árangur þá eigum við ekki að láta hér staðar numið hér og markmiðið er klárt;
Við eigum að stefna að því að auka verðmætið um 80% þ.a. hver fiskur gefi af sér um 4.000 kr. Gangi þetta eftir þá getur þetta þýtt verðmætaaukningu um hátt í 60 milljarða fyrir þorskinn einan - og það án þess að auka veiðarnar.
Forsendan fyrir því að við getum náð þessum árangri er samspil margra þátta, s.s. frekari fullvinnslu aflans og
ekki síst nýsköpun í líftækni og hátækniframleiðslu. Fyrirtækið Kerecis er gott dæmi í þessu samhengi en það umbreytir fiskroði í hátækni-lækningavörur.
Íslenski sjávarklasinn er samstarfsverkefni margra fyrirtækja í haftengdri starfsemi sem hefur það að
markmiði að bæta samstarf, auka verðmæti og efla skilning á mikilvægi samvinnu fyrirtækja á öllum sviðum haftengdrar starfsemi.