Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

New York, New York ... nú getið þið keypt hrossaþara og söl í verslunum Whole Foods

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Nú geta New York búar gætt sér á sölum og hrossaþara frá ströndum Suðurnesja - þökk sé fyrirtækinu Hafnotum í Grindavík sem selur þetta sælgæti hafsins undir vörumerkinu Seaweed Iceland.

Hann Grettir hjá Hafnotum leggur mikla áherslu á að bjóða vöru í allra hæsta gæðaflokki og fá fyrir vikið hærra verð en samkeppnisþari ættaður frá Asíu.

Þari og annar sjávargróður er mikið notaður í margs konar asískri matargerð og það eru miklir möguleikar í sölu víða um heim. Á heimasíðunni Seaweed.is eru spennandi uppskriftir og fróðleikur

Hafnot er eitt af þeim 16 fyrirtækjum sem fengu styrk úr vaxtarsamningi Suðurnesja í esember.

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta