Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

260 milljón ára möguleiki!

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Útboð á sérleyfum til olíurannsókna og -vinnslu á Drekasvæðinu stendur nú sem hæst. Síðasta sumar fóru fram rannsóknir á svæðinu á vegum norsku olíumálastofnunarinnar og Háskólans í Bergen og voru niðurstöðurnar kynntar fyrir skemmstu á vetrarmóti norrænna jarðfræðinga.

Rannsóknirnar byggja m.a. á sýnum sem tekin voru úr bröttum hlíðum á Jan Mayen hryggnum. Sýnunum var safnað með fjarstýrðum kafbáti bæði innan lögsögu Noregs og Íslands. Greiningar á sýnunum benda til þess að gömul setlög sé að finna á svæðinu en elsta sýnið er 260 milljón ára gamalt. 

Sýnin sem nú hafa verið rannsökuð staðfesta tilvist móður- og geymslubergs. Þessar niðurstöður eru jákvæðari heldur en Olíustofnunin þorði að vona. Ýmsir aðrir óvissuþættir eru fyrir hendi um það hvort olía eða gas hafi myndast og varðveist á svæðinu eins og til að mynda hitastigull í jarðlögum og tilvist þakbergs.

Lykilforsenda fyrir myndun olíu eða gass er að móðurberg sé að finna á svæðinu, en olía eða gas myndast úr því við réttar aðstæður í jarðlögunum. Jafnframt þarf að vera til staðar geymsluberg þar sem olían eða gasið safnast saman.

Fyrirlestur norsku olíustofnunarinnar má skoða hér

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta