Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

Janúarmet í komu erlendra ferðamanna 17,5 fjölgun frá því í fyrra!

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Það er því ekki annað hægt að segja en að ferðaárið 2012 fari vel af stað því að nýliðinn janúarmánuður sló öll janúarmet í komu erlendra ferðamanna frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð fyrir áratug. Um 26 þúsund erlendir gestir heimsóttu Ísland í janúar og er um að ræða fjölgun um 3.900 ferðamenn frá því í fyrra.

Bretar langfjölmennastir
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í janúar frá Bretlandi eða 26,6% af heildarfjölda. Bandaríkjamenn voru næstfjölmennastir eða 15,0% af heildafjölda, næstir komu Danir og Norðmenn með 6,6% hlutdeild hvor þjóð, síðan komu Svíar (5,5%), Frakkar (5,3%) og Þjóðverjar (4,9%). Samtals voru framangreindar sjö þjóðir 70,5% af ferðamönnum til landsins í janúar.

Bretum fjölgar um 54%
Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega fjölgun frá Bretlandi eða um 53,7%. Norður Ameríkönum fjölgar ennfremur umtalsvert eða um 31,1% og sama má segja um ferðamenn sem flokkast undir ,,Annað” en þeim fjölgar um 26,6%. Lítilsháttar fækkun er hins vegar frá Norðurlöndunum (-5,7%) og Mið-/ og S-Evrópu (-8,0).

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta