Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

Átak til atvinnusköpunar – nýsköpunarstyrkir til að fara alla leið  

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Öflug nýsköpun og frumkvöðlastarf eru lykilþættir í að byggja upp sterkt atvinnulíf.

Átak til atvinnusköpunar  er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Árið 2011 fengu 136 fyrirtæki og frumkvöðlar styrki fyrir alls129 milljónir og skiptust þeir nokkuð jafnt á milli kynja.

Verkefnið Átak til atvinnusköpunar var sett á laggirnar fyrir réttum 16 árum og þá rétt eins og nú var markmiðið að styðja með öflugum hætti við þróun þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta. Og að auki að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum.

Árið 2010 framkvæmdi Félagsvísindastofnun árangurskönnun meðal fyrirtækja sem fengu styrk úr átakinu á árabilinu 2001 – 2010. Þar kemur m.a. fram að í rúmlega helmingi tilvika leiddi verkefnið til þess að ný vara eða þjónusta var sett á markað. Jafnframt sýndi rannsóknin að í 67% tilvika leiddi verkefnið til aukinnar markaðssóknar.

Opnað verður fyrir umsóknir í Átaki til atvinnusköpunar n.k. föstudag, 10 febrúar.  Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins.

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað og nánari upplýsingar með því að smella hér

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta