Umsagnarfrestur um tillögur nefndar um endurskoðun iðnaðarlaga framlengdur til 27. mars
Nefnd sem iðnaðarráðherra skipaði til að skoða hugsanlega endurskoðun iðnaðarlaga, nr. 42/1978, skilaði skýrslu með tillögum sínum til ráðherra í byrjun febrúar. Áður en ráðherra tekur afstöðu til tillagna nefndarinnar hefur verið ákveðið að gefa almenningi og hagsmunaaðilum tækifæri til að gera athugasemdir við tillögurnar.
Upphaflega stóð til að frestur til að gera athugasemdir og senda inn umsagnir vegna tillagna nefndarinnar rynni út á 19. mars, en vegna fjölda áskoranna hefur umsagnarfresturinn verið framlengdur til 27. mars.