Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2012 Forsætisráðuneytið

Opinber heimsókn forsætisráðherra Kína til Íslands

Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, er væntanlegur í opinbera heimsókn til Íslands þann 20. apríl nk. Boð til forsætisráðherra Kína hefur legið fyrir frá árinu 2006 þegar Halldór Ásgrímsson, þáverandi forsætisráðherra, sendi boðsbréf. Árið 2011 var 40 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kína og var þá hafist handa við að finna tíma fyrir mögulega heimsókn. Heimsóknin hefur verið undirbúin í samstarfi við sendiráð Kína hér á landi og með atbeina sendiráðs Íslands í Kína.

Forsætiráðherra Kína mun, auk fundar með forsætisráðherra og fleiri ráðherrum, eiga fund með forseta Íslands. Einnig mun hann kynna sér jarðhitanýtingu á Íslandi, en hann er jarðfræðingur að mennt.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum