Hoppa yfir valmynd
11. júní 2012 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum vegna tímabilið júlí - desember 2012

Föstudaginn 8. júní 2012 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2012.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 3.450 stk. á meðalverðinu 95 kr./stk. Hæsta boð var 130 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 122 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 4.720 stk. á meðalverðinu 87 kr./stk.  Hæsta boð var 130 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 121 kr./stk.

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 5 kr./stk.  Hæsta boð var 25 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk  Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 5 kr./stk.

Fjórar umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 90.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   350 Gróðurvörur ehf.
1.300 Húsasmiðjan/Blómaval hf.

 

Aðrar pottaplöntur júlí -  desember 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   150  Gróðurvörur ehf.
2.010 Húsasmiðjan/Blómaval hf.

 

Tryggðablóm júlí – desember  2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
6.500 Samasem ehf.

 

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2012

Magn (stk) Tilboðsgjafi
10.000 Gróðurvörur ehf.
25.000 Grænn markaður ehf.
10.000 Húsasmiðjan/Blómaval hf.
45.000 Samasem ehf.

 

Reykjavík, 11. júní 2012  

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum