Hoppa yfir valmynd
26. september 2012 Forsætisráðuneytið

Fundur forsætisráðherra með David Miliband

Forsætisráðherra og David Miliband
Forsætisráðherra og David Miliband

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, átti í dag fund með  David Miliband, fyrrverandi utanríkisráðherra og umhverfisráðherra Bretlands, sem heldur fyrirlestur í Háskóla Íslands í dag.  

David Miliband var utanríkisráðherra Bretlands frá 2007 til 2010 og var fyrst kjörinn á þing fyrir breska Verkamannaflokkinn árið 2001.  Hann þekkir vel til aðstæðna sem hér sköpuðust eftir efnahagshrunið haustið 2008.  Forsætisráðherra og Miliband ræddu um efnahagsmál, Evrópumál og stöðu endurreisnarinnar hér á landi.  Hrósaði Miliband íslenskum stjórnvöldum sérstaklega fyrir góðan árangur við endurreisn efnahagslífsins eftir bankahrunið 2008 og minnkandi atvinnuleysi á síðustu árum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum