Breytingar á búvörusamningum og nýr búnaðarlagasamningur undirritaður
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og Oddný G. Harðardóttir, fjármála- og efnahagsráðherra undirrituðu í dag breytingu á búvörusamningum og nýjan búnaðarlagasamning fyrir hönd ríkisins. Samningarnir fela í sér framlengingu búvörusamninga um tvö ár. Framlag ríkisins til búnaðarlagasamnings er nokkuð aukið einkum hvað varðar jarðrækt og eflingu kornræktar.
Samningarnir fela í sér breytingar á núverandi samningum þannig að ekki ganga í gildi ákvæði upphaflegra búvörusamninga frá því fyrir 2009 heldur eru samningar framlengdir miðað við núverandi fjárhæðir samkvæmt fjárlögum. Með þessu er bændum tryggður stöðugleiki þar sem að samningarnir framlengjast um tvö ár.
Breytingar á búvörusamningunum miða að því að eftirstöðvar verðbóta vegna fyrri ára komi ekki að fullu til framkvæmda heldur verði framlög vegna búvörusamninga lækkuð um 1% en hækka síðan um sömu prósentutölu og verðlagsforsendur fjárlaga gera milli áranna 2012 og 2013 (3,9%). Jafnhliða þessu hafa viðræður farið fram við Bændasamtök Íslands um nýjan búnaðarlagasamning, en samkvæmt lögum skal hann gerður til 5 ára.
Ýmsar úrbætur eru gerðar á búnaðarlagasamningnum og framlag vegna hans hækkað. Hækkunin kemur einkum fram í hærri greiðslum vegna jarðræktar í því markmiði að auka hlutdeild innlendrar fóðurframleiðslu með eflingu kornræktar og auknum framlögum til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins.
Samningarnir kalla ekki á aukin útgjöld ríkisjóðs miðað við framkomið fjárlagafrumvarp.
Búvörusamningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar
Búvörusamningur um starfskilyrði mjólkurframleiðslu
Búvörusamningur um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða