Hoppa yfir valmynd
28. september 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

Ráðherra talar á fundum fiskvinnslustöðva og sveitarfélaga

Steingrímur J. Sigfússon hélt í gær tvær ræður. Fyrri ræðuna flutti hann á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva á Grand hótel en þar fjallaði hann um ytri aðstæður í íslenskum sjávarútvegi  ásamt því að ræða stjórnskipulagsbreytingar og stofnun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Síðari ræðuna hélt ráðherra á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna sem fram fer í Hörpu. Þar var umræðuefni hans ástand efnahagsmála og mögulegar framtíðarhorfur auk sameiginlegra verkefna ríkis og sveitarfélaga. Í lok beggja erindanna sköpuðust líflegar umræður um málefni tengd sjávarútvegi og sveitarfélögunum.

Glærur frá fundi Samtaka fiskvinnslustöðva
Glærur frá fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta