Hoppa yfir valmynd
1. október 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Auknar barnabætur og breyttar úthlutunarreglur

Fréttatilkynning nr. 12/2012

Að tillögu Oddnýjar G. Harðardóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ríkisstjórnin samþykkt breytingar á úthlutunarreglum barnabóta við álagningu 2013.

Í fjárlagafrumvarpi, sem fjármála- og efnahagsráðherra fylgdi úr hlaði við upphaf þings í nýliðnum mánuði, er jafnframt gert ráð fyrir að barnabætur verði 2,5 milljörðum króna hærri árið 2013 en á þessu ári eða alls tæpir 10,8 milljarðar króna.

Tillögurnar, sem ríkisstjórnin samþykkti 28. september sl. eru eftirfarandi:

  1. Viðbót vegna barna yngri en 7 ára hækkar  úr 61.191 kr. á ári í 100.000 kr.
  2. Tekjuskerðingarmörk verði hækkuð úr 1.800.000 kr á ári fyrir einstæða foreldra í 2.400.000. Sams konar mörk fyrir foreldra í sambúð verði hækkuð úr 3.600.000 kr á ári í 4.800.000. Þessi hækkun tekur mið af örorkubótum og verður til viðmiðunar í húsnæðisbótum enda mikilvægt að félagsleg stuðningskerfi talist við í viðmiðunarmörkum.
  3. Upphæðir barnabóta (annarra en bóta vegna barna yngri en 7 ára) verði hækkaðar um 10%.

Framangeind ráðstöfun er í góðu samræmi við athugasemdir sem gerðar eru í nýrri skýrslu Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands um áhrif mótvægisaðgerða á skuldavanda, fátækt og atvinnu. Þar er m.a. bent á nauðsyn þess að styðja betur við ungar barnafjölskyldur en skerðing barnabóta hófst löngu fyrir hrun fjármálakerfisins fyrir fjórum árum.

Nauðsynlegt hefur verið talið að huga sérstaklega að kjörum ungra barnafjölskyldna í kjölfar efnahagskreppunnar. Unnið hefur verið að því að koma á samræmdum stuðningi við barnafjölskyldur með því að taka upp barnatryggingar sem ætlað er að leysa barnabætur af hólmi. Breytingar af þessum toga krefjast vandaðs undirbúnings.

Meðan þessu kerfi hefur ekki verið komið á verða barnabætur að mestu með óbreyttu sniði en taka þó engu að síður mið af framangreindum árherslum.

Nánar er fjallað um auknar barnabætur og útfærslu þeirra í meðfylgjandi kynningargögnum fjármála- og efnahagsráðherra sem og minnisblaði um barnabætur sem ríkisstjórnin samþykkti 28. september sl.

Reykjavík, 1. október 2012

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta