Ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum
Upplýsingar um verklagsreglur og leiðbeiningar á grundvelli reglugerðar.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti gaf út í október 2011reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum . Hún tekur til réttinda og skyldna aðila skólasamfélagsins í allri starfsemi á vegum skóla, skólabrags, samskipta í skóla, skólareglna og málsmeðferðar vegna brota á þeim. Að auki tekur hún til ábyrgðar nemenda með hliðsjón af aldri þeirra, þroska og aðstæðum. Í reglugerðinni er kveðið á um gerð verklagsreglna, sem hér segir:
- Í 7. gr. er fjallað um starf grunnskóla gegn einelti. Þar er m.a. kveðið á um að foreldrar og skólar geta óskað eftir aðstoð sérstaks fagráðs, sem starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis, ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu sérfræðiþjónustu. Ráðuneytið gaf útverklagsreglurum starfsemi fagráðsins þann 10. mars 2012. Sjá einnig upplýsingar um fagráðið á síðunni gegneinelti.is
- Samkvæmt 9. gr. er gert ráð fyrir að ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samráði við aðila skólasamfélagsins, setji almenn viðmið um skólareglur. Niðurstaða starfshóps, sem skipaður var af þessu tilefni, komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri þörf fyrir að setja slík viðmið því reglugerðin gæfi mjög ítarlegan og greinargóðan ramma fyrir skólana til þess að útbúa eigin skólareglur. Í niðurstöðum starfshópsins kemur einnig fram að mikilvægt sé að skólareglur endurspegli sérkenni hvers skóla og þeirrar uppeldis- og agastefnu sem hann hefur sett sér. Ráðuneytið féllst á þá niðurstöðu.
- Í 13. gr. reglugerðarinnar er ákvæði sem heimildar Sambandi íslenskra sveitarfélaga að taka saman fyrir skólana, leiðbeiningar sem fjalla um líkamlegt inngrip í mál nemenda vegna óásættanlegrar og/eða skaðlegrar hegðunar og fleiri atvika af slíkum toga. Sambandið útbjó þær leiðbeiningar og eru þær aðgengilegar á upplýsingavef Sambandsins. Í 4. mgr. 13. gr. er fjallað um nemendur sem á skólatíma eru "undir áhrifum vímuefna" og hefur ráðuneytið gefið út álit um það efni.
Til frekari upplýsinga um framangreint er hér bent á að Árborg hefur útbúið verklagsreglur um viðbrögð við verulegum frávikum nemenda frá ábyrgð og skyldum í grunnskóla. Þá hefur Reykjavíkurborg nýlega lokið endurskoðun verklagsreglna um þjónustu við nemendur með fjölþættan vanda. Þessar reglur eru aðgengilegar og aðilar skólasamfélagsins hvattir til að hagnýta sér þessa vinnu. Vakin er athygli á síðu á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitarfélaga „Leiðbeiningar og verklagreglur“. Einnig hefur Sambandið gefið út leiðbeiningar til skólastjóra og forsvarsmanna skólaskrifstofa vegna erfiðra ágreiningsmála sem upp koma í starfi grunnskóla og aðgengilegar eru á sömu síðu.