Áfangaskýrsla nefndar um lagningu raflína í jörð
Þann 1. Mars 2012, skipaði iðnaðarráðherra nefnd til að móta stefnu um lagningu raflína í jörð í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var á vorþingi. Þingsályktunin var lögð fram af umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og hljóðaði svo: „Alþingi ályktar að fela iðnaðaráðherra í samráði við umhverfisráðherra að skipa nefnd er móti stefnu um lagningu raflína í jörð og þau sjónarmið sem taka ber mið af hverju sinni við ákvarðanir þar um. Iðnaðarráðherra skal flytja Alþingi skýrslu um störf hennar fyrir 1. október 2012“.
Eitt af fyrstu verkefnum nefndarinnar var að greina helstu hagsmunaaðila og kalla eftir sjónarmiðum þeirra. Auk þessa var samráðsferlið auglýst með fréttatilkynningum, útvarpsviðtali og málþingi, en nefndin hélt fjölsótt málþing þann 11. maí 2012. Áhersla nefndarinnar á opið samráðsferli skilaði sér vel því fjöldi umsagna og viðbótargagna bárust nefndinni. Mikilvægt er að mótun stefnu um málefni þar sem upp koma fjölmargar ólíkar skoðanir hverju sinni sé unnin í virku samráðsferli. Það hefur vissulega verið gert, en í öðrum áfanga verkefnisins er ætlunin að draga hin ólíku sjónarmið enn nær vinnuborðinu í því skyni að geta komið fram með stefnuskjal með sem breiðasta skírskotun, enda væri það í samræmi við hina þverpólitísku tillögu sem Alþingi samþykkti sl. vor.
Ráðherra hefur ákveðið, í samræmi við megintillögu nefndarinnar, að bæta við fulltrúum í nefndina og um leið lengja starfstíma hennar til næstu áramóta. Er gert ráð fyrir að bæta við nefndina fulltrúum frá Landvernd, Landsneti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Neytendasamtökunum.
Skýrsluna og umsagnir má sjá hér.