Hoppa yfir valmynd
9. október 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

Frestun á eindaga almenns og sérstaks veiðigjalds frá 15. október til 1. desember 2012

    Með gildistöku laga nr. 74/2012, um veiðigjöld, var mælt fyrir um álagningu tvenns konar veiðigjalda, þ.e. almenns gjalds og sérstaks gjalds. Áætla má að tekjur ríkissjóðs af gjöldunum á yfirstandandi fiskveiðiári 2012/2013, verði sem hér segir:

  Almennt veiðigjald Sérstakt veiðigjald
Álagt 1. september 2012 3,2 ma.kr. 7,3 ma.kr.
Álagning síðar á fiskveiðiári 1,4 ma.kr. 3,0 ma.kr.
Samtals: 4,6 ma.kr. 10,3 ma.kr.

    Samkvæmt ákvæði II. til bráðabirgða í lögum um veiðigjöld eiga skuldsettar útgerðir rétt á lækkun á sérstöku veiðigjaldi vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum, eins og nánar greinir í ákvæðinu. Þessi lækkun hefur verið talinn geta numið 1,5-2 ma.kr., en ekki er tekið tillit til hennar í töflunni.

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur í samstarfi við RSK og Fiskistofu, auk óháðra endurskoðenda, unnið að setningu reglugerðar um framkvæmd lækkunarinnar. Sú vinna hefur reynst umfangsmeiri en ætlað var í fyrstu, en gert er ráð fyrir því að reglugerðin verði gefin út innan fárra daga. Í henni verður mælt fyrir um heimild skuldsettra útgerða til að sækja um lækkun sérstaks veiðigjalds til 1. nóvember nk. Leitast er við að hafa umsóknar og afgreiðsluferil umsókna svo einfaldan sem kostur er. Fiskistofu er ætlað að skera úr um réttindi einstakra útgerða til lækkunar eigi síðar en 1. desember nk.

    Samkvæmt lögum um veiðigjöld eru þau lögð á við upphaf hvers fiskveiðiárs hverju sinni, þ.e. 1. september. Greiða skal gjöldin með fjórum jöfnum greiðslum og var fyrsti gjalddagi þeirra 1. október síðastliðinn. Eindagi er 15 dögum eftir gjalddaga. Með vísan til þess að framangreind reglugerð um lækkun á sérstöku veiðigjaldi hefur ekki verið sett og í því skyni að koma til móts við útgerðaraðila hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra ákveðið að gefa út reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 619/2012, um innheimtu veiðigjalda o.fl., þess efnis að fyrsta eindaga vegna álagðra veiðigjalda (almenna og sérstaka) fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 verði frestað frá 15. október til 1. desember nk.

 

Reglugerðina má sjá hér.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta