Hoppa yfir valmynd
16. október 2012 Atvinnuvegaráðuneytið

Ráðherra ræddi matvælalöggjöf á Matvæladegi MNÍ

 

Matvælaöryggi og neytendavernd voru fyrirferðarmikil á Matvæladegi Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands sem haldinn var í dag en þar hélt Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra ræðu.

 Hér má lesa ræðu ráðherra

 

Góðir gestir,

Mér er sönn ánægja að fá að ávarpa ykkur hér á Matvæladegi Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands. Ég vil þakka það framtak að efnt skuli til þessa fundar. Yfirskrift Matvæladagsins í ár er matvælaöryggi og neytendavernd. Þetta eru málefni sem snerta okkur öll, enda erum við nú flest, ef ekki öll, neytendur sem vilja örugg matvæli.

Nýlega var innleidd ný matvælalöggjöf á Íslandi. Gerðar voru breytingar á lögum um matvæli, þar sem slíkar breytingar voru nauðsynlegar vegna EES- löggjafar. Lagabreytingarnar fólu í sér að ráðuneytið fékk skýrar heimildir til að setja reglugerðir til að innleiða EES-gerðir. Meginefni nýrrar matvælalöggjafar er þannig að finna í gerðum Evrópusambandsins sem byggðar eru á EES samningnum. Efnislega er hér um mikla löggjöf að ræða og ítarlega. Löggjöfin hefur víðtæk áhrif á matvælaframleiðendur, eftirlitsaðila og neytendur. Þessar breytingar sem gerðar voru á löggjöfinni voru bæði nauðsynlegar og tímabærar.

Hér gefst ekki tími til að fjalla um öll nýmæli sem hin nýja löggjöf kveður á um en rétt er að nefna eftirfarandi.

-          Nú er í fyrsta sinn í settum lögum fjallað um hvað séu örugg matvæli, í 8. gr. matvælalaganna.

-          Efnisákvæði um ábyrgð matvælaframleiðanda eru mun skýrari og ítarlegri en áður var.

-          Ákvæði um að eftirlit skuli byggjast á áhættugreiningu sem kveður á um tíðni eftirlits og umfang skuli vera í réttu hlutfalli við áhættuna. Eftirlitsaðilar eiga þannig að einbeita sér að þeim sem eru ekki að standa sig.

-          Eftirlitið í fæðukeðjunni, frá frumframleiðslu til tilbúinna matvæla auk þess sem kveðið er á um eftirlit með fóðri.

-          Efnisákvæði um rekjanleika matvæla og feril þeirra, sem auðveldar eftirlit og innkallanir vöru.

-          Efnisákvæði um vernd neytenda og upplýst val neytenda. Skýrt er kveðið á um í lögunum að leitast skuli við að vernda hagsmuni neytenda og gefa neytendum kost á upplýstu vali með tilliti til matvæla sem þeir neyta. Þá er óheimilt að villa um fyrir neytendum með merkingu, auglýsingu og framsetningu matvæla.

 Markmið matvælalöggjafarinnar er í raun tvíþætt, annars vegar matvælaöryggi og hins vegar neytendavernd. Þessum markmiðum ber að ná fram meðal annars með

-          innra eftirliti fyrirtækja,

-          áhættugreiningu, þ.m.t. áhættumati eftirlitsaðila,

-          rekjanleika afurða og vara,

-          fræðslu, upplýsingamiðlun og rannsóknum,

-          neytendavernd og

-          opinberu eftirliti.

Mikil vinna hefur verið lögð í að byggja upp öflugt opinbert eftirlit hér á landi. Opinbert eftirlit með matvæla- og fóðurframleiðslu er nauðsynlegt en það kemur ekki í stað öflugs innra eftirlits fyrirtækjanna með framleiðslu sinni. Það eru matvælafyrirtækin og fóðurfyrirtækin sem bera ábyrgð á því að framleiðsla þeirra sé í samræmi við ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla. Ábyrgð þeirra er mikil. Mikilvægt er að fyrirtækin sinni þessu hlutverki sínu vel og sú er nú yfirleitt raunin.

Þessi ábyrgð fyrirtækjanna á eigin framleiðslu virðist stundum gleymast í umfjöllun um málefni er varða matvælaöryggi. Þegar vandamál hafa komið upp hafa fjölmiðlar í umfjöllun og gagnrýni einblínt á opinbera eftirlitsaðila en segja má að þá sé verið að skjóta sendiboðann.

Markmiðið með löggjöfinni, reglugerðunum og eftirlitinu er að sjá til þess að á Íslandi séu framleidd örugg og holl matvæli fyrir neytendur. Að lokum snýst þetta því allt um neytendavernd. Staða íslenskra neytenda er góð en við getum alltaf gert betur. Gott er því að fara yfir málið saman, eins og við erum að gera hér í dag, og sjá hvað við getum gert betur.

Takk fyrir.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta