Fundum um stjórnun veiða á kolmunna og síld lauk án niðurstöðu
Dagana 16. – 19. október voru haldnir fundir strandríkja um stjórnun veiða úr kolmunnastofninum og norsk-íslenska síldarstofninum fyrir árið 2013. Lauk báðum fundum án niðurstöðu og boðað verður til frekari fundarhalda í framhaldinu.
Formaður íslensku sendinefndarinnar var Kristján Freyr Helgason frá atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytinu en auk hans var sendinefndin skipuð þeim Guðmundi J. Óskarssyni frá Hafrannsóknastofnuninni og Kristjáni Þórarinssyni frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.