Ráðherra fundar með Chen Jian, vara viðskiptaráðherra Kína
Sendinefnd kínverskra embættismanna, undir forystu Chen Jian, vara viðskiptaráðherra Kína, átti í morgun fund með Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Á fundinum var farið yfir samstarf þjóðanna á sviði fjárfestinga, viðskipta, ferðamála og fleiri atriða.
Rætt var um hvaða fjárfestingartækifæri kunna að vera til staðar á Íslandi, áherslur Íslands þegar kemur að beinni erlendri fjárfestingu og þá löggjöf sem gildir á því sviði. Farið var yfir hvernig auka mætti samstarf þjóðanna og í því sambandi m.a. bent á gerð fríverslunarsamnings milli landanna og möguleika á að koma á beinu reglubundnu flugi milli landanna. Í kjölfar fundarins fór sendinefndin og skoðaði Hellisheiðarvirkjun.