Forsendur byggðakvóta - 6.707 þorskígildistonna byggðakvóta úthlutað til 49 byggðarlaga
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur úthlutað 6.707 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013, samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum og samkvæmt reglugerð ráðuneytisins nr. 629 frá 13. júlí 2012.
Alls er byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 49 byggðarlög úthlutun.
Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2002/2003 til fiskveiðiársins 2011/2012.
Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar og fá fjögur byggðarlög þá úthlutun.
Nánari upplýsingar um úthlutunina má sjá hér.