Hoppa yfir valmynd
20. desember 2012 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2013

Fjögur tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 4.100 stk. á meðalverðinu 86 kr./stk. Hæsta boð var 130 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 111 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 6.100 stk. á meðalverðinu 94 kr./stk.  Hæsta boð var 130 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 118 kr./stk.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 3.000 stk., á meðalverðinu 27 kr./stk.  Hæsta boð var 49 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 38 kr./stk.

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk., á meðalverðinu 13 kr./stk.  Hæsta boð var 40 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk  Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 13 kr./stk.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 98.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2013

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   1.200 Húsasmiðjan / Blómaval
      800 Gróðurvörur ehf
      200 Grænn Markaður ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2013

Magn (stk) Tilboðsgjafi
2.300 Húsasmiðjan / Blómaval
   700  Gróðurvörur ehf

 

Rósir janúar – júní 2013

Magn (stk) Tilboðsgjafi
1.000 Grænn Markaður ehf
 1.000 Samasem ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2013

Magn (stk) Tilboðsgjafi
                 9.000 Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2013

Magn (stk) Tilboðsgjafi
 8.000 Gróðurvörur ehf
40.000 Grænn markaður ehf
50.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 20. desember 2012  

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum