Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Fyrstu tvö leyfin til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu gefin út.

Fyrstu tvö leyfin til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði gefin út
Fyrstu tvö leyfin til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði gefin út

Steingrímur J Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og  Ola Borten Moe olíumálaráðherra Noregs voru viðstaddir þegar tvö sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu voru gefin út. Petoro Iceland AS, útibú á Íslandi, er leyfishafi í báðum leyfunum fyrir hönd norska ríkisins, samkvæmt ákvörðun norska stórþingsins frá 18. desember sl., til samræmis við samning milli Íslands og Noregs frá 1981 um landgrunnið á svæðinu milli Íslands og Jan Mayen og bókun við áðurnefndan samning frá nóvember 2008.

Annað leyfið er til Faroe Petroleum Norge AS sem rekstraraðila með 67,5 % hlut, Íslensks Kolvetnis ehf. með 7,5 % hlut og Petoro Iceland AS með 25 % hlut.

Hitt leyfið er til Valiant Petroleum ehf. sem rekstraraðila með 56,25 % hlut, Kolvetnis ehf. með 18,75 % hlut og Petoro Iceland AS með 25 % hlut.

Leyfin eru veitt með vísan til ákvæða laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, með síðari breytingum, reglugerð nr. 884/2011, ásamt upplýsingum í sérleyfisumsókn og öðrum upplýsingum frá umsækjendum.

Orkustofnun  leitaði umsagna umhverfisráðuneytis og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis í samræmi við ákvæði laga og mat þær umsagnir með tilliti til framkominna umsókna og þeirra rannsóknaráætlana sem þar um ræðir. Stofnunin kannaði ítarlega tæknilega og jarðfræðilega getu umsækjenda til að takast á við þá umfangsmiklu starfsemi sem í leyfisveitingunni felst. Þá kannaði Orkustofnun fjárhagslega getu móðurfyrirtækja umsækjenda svo tryggt verði að umsækjendur hafi fjárhagslegt bolmagn til að sinna verkefninu til lengri tíma og til að gæta viðhlítandi umhverfis- og öryggisþátta.

Meðfylgjandi er kort af leyfissvæðunum, en leyfin ásamt fylgiskjölum og sérstöku fylgibréfi með þeim má sjá á vef Orkustofnunar, www.os.is

Leyfissvæði

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta