Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að hönnunarstefnu til umsagnar

Gert er ráð fyrir að ný hönnunarstefna verði kynnt í ríkisstjórn í febrúar 2013.
Meðfylgjandi drög liggja nú fyrir og óskar stýrihópur verkefnisins eftir rafrænum athugasemdum við þau fyrir mánudaginn 11. febrúar 2013.
Athugasemdirnar skulu sendar á [email protected] - merktar HÖNNUNARSTEFNA - aths.
Mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland hófst í byrjun árs 2011. Stýrihóp iðnaðarráðherra (nú atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra) skipuðu Sigurður Þorsteinsson, formaður, Sóley Stefánsdóttir og síðar Jóhannes Þórðarson  fulltrúar mennta- og menningarmálaráðherra og Halla Helgadóttir, fulltrúi Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Að stefnunni unnu einnig Hanna Dóra Másdóttir frá iðnaðarráðuneyti og Katla Maríudóttir frá Hönnunarmiðstöð ásamt fjölda hönnuða, arkitekta og annarra sérfræðinga sem tóku þátt í stefnumótandi fundum sem haldnir voru á meðan á verkefninu stóð.

Hönnunarstefna fyrir Ísland

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta