Umfjöllun um efnahagsbatann á Íslandi á DR1
Í fréttum danska ríkissjónvarpsins DR1 í gær var frétt um viðsnúninginn í efnahagsmálum Íslands frá hruni. Í fréttaumfjölluninni er lögð áhersla á mikilvægi sjávarútvegs og ferðaþjónustu og bendi öll sólarmerki til þess að efnahagurinn eigi enn eftir að rísa á árinu 2013. Í fréttinni er m.a. rætt við Steingrím J Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og Friðrik J Arngrímsson framkvæmdastjóra LÍÚ.
Fréttaumfjöllunin (ath. – umrædd frétt hefst á 18 mínútu fréttaþáttarins)