Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Vonbrigði með einhliða ákvörðun Evrópusambandsins og Noregs um makrílkvóta

Það veldur miklum vonbrigðum að Evrópusambandið og Noregur hafi einhliða skammtað sér tæplega 490 þúsund tonna makrílkvóta fyrir árið 2013, eða ríflega 90% af ráðlagðri heildarveiði úr makrílstofninum.  Samkvæmt þessu ætla þeir Íslandi, Færeyjum og Rússlandi innan við 10% veiðihlut. Með þessu er horft framhjá breyttu göngumynstri makrílstofnsins,  en á árinu 2012 er áætlað að um 1,5 milljónir tonna af makríl hafi verið í íslensku lögsögunni, hafi þyngst þar um allt að 50% og étið allt að 3 milljónum tonna af fæðu með tilheyrandi áhrifum á lífríkið.

Lykillinn að lausn makríldeilunnar er að tekið verði fullt tillit til þessara miklu breytinga á göngu makrílsins, að allir aðilar fái sanngjarnan hlut og umfram allt að veiðarnar byggist á vísindalegu mati á ástandi stofnsins. Við vonum að Evrópusambandið og Noregur sjái að sér og verði tilbúnir að setjast að samningaborðinu til þess að finna varanlega lausn sem tryggi sjálfbæra nýtingu stofnsins. Það eru hagsmunir allra hlutaðeigandi aðila að lausn finnist sem fyrst.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta