Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

1,5 milljarður til uppbyggingar ferðamannastaða á næstu þremur árum

Ráðherra, formaður Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða og fulltrúar Fornleifaverndar
Ráðherra, formaður Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða og fulltrúar Fornleifaverndar

Í dag voru veittir styrkir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og er þetta fyrsta úthlutunin af þremur á þessu ári. Alls fengu 44 verkefni styrk að þessu sinni og nam heildarstyrkupphæðin rúmlega 150 milljónum króna. Á næstu þremur árum mun sjóðurinn stóreflast en hann mun fá árlega 500 milljónir aukalega í tengslum við fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar. til að standa fyrir löngu tímabæru viðhaldi, gróðurvernd og  uppbyggingu við ferðamannastaði. 

Geysir og Stöng í Þjórsárdal með hæstu styrkina

Hæstu styrkina, 20 milljónir króna, fá Sveitarfélagið Bláskógabyggð vegna hugmyndasamkeppni og deiliskipulagsvinnu við Geysi í Haukadal og Fornleifavernd ríkisins til að ljúka skipulags- og hönnunarvinnu og hefja uppbyggingu við Stöng í Þjórsárdal. Hveravallafélagið fær 10 milljónir króna vegna skipulags og framkvæmda á Hveravöllum, Skógrækt ríkisins 7,5 milljónir króna vegna þjónustuhúss í Þjóðskógum við Laugarvatn og Sveitarfélagið Hornafjörður 7,3 milljónir króna vegna göngubrúar og stíga við Fláajökul. Fjórir aðilar fá 5 milljónir króna í styrk en aðrir lægri. (Sjá lista yfir styrkþega).

Fjölbreytt verkefni um allt land

Verkefnin sem hljóta styrki eru fjölbreytt og kennir ýmissa grasa. Öll eiga þau þó sameiginlegt að þeim er ætlað að stuðla að þeim markmiðum sem sett voru með stofnun Framkvæmdasjóðsins. Þar ber hæst uppbyggingu, viðhald og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða á náttúruverndarsvæðum um land allt, að tryggja öryggi ferðamanna, vernda náttúru landsins og fjölga viðkomustöðum ferðamanna, svo nokkuð sé nefnt. Áberandi er hve miklu er veitt til hönnunar ferðamannastaða.

500 milljónir árlega næstu þrjú árin

Á næstu dögum verður auglýst eftir styrkumsóknum fyrir næstu úthlutun úr sjóðnum og er gert ráð fyrir að úthlutun fari fram í apríl n.k. Eins og fram hefur komið tilkynntu stjórnvöld í haust um 500 milljóna króna árlegt framlag til sjóðsins næstu þrjú árin í tengslum við fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar. Með þessu aukna framlagi er hægt að fara með mun markvissari hætti en áður í uppbyggingu áfangastaða ferðamanna vítt og breitt um landið, bæta ásýnd og yfirbragð staða og svæða, draga úr álagi og skemmdum af völdum vaxandi fjölda ferðamanna, bæta öryggismál, innviði og þjónustu við ferðamenn og þar með upplifun þeirra og ánægju af dvölinni.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamálastofu og starfsmaður Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða í síma 535-5500 eða með tölvupósti [email protected]  

Lýsing á verkefnum sem fá styrk.

Umsækjandi Heiti verkefnis Styrkur
     
Fornleifavernd ríkisins  Stöng í Þjórsárdal, ásýnd og umhverfi  20.000.000
Sveitarfélagið Bláskógabyggð  Geysir í Haukadal - Hugmyndasamkeppni og deiliskipulagsvinna 20.000.000
Hveravallafélagið ehf  Deiliskipulag Hveravalla, virkjun borhola og veituframkvæmdir   10.000.000
Skógrækt ríkisins  Þjónustuhús í Þjóðskógunum - Laugarvatn 7.500.000
Sveitarfélagið Hornafjörður  Jöklaleiðin - Göngubrú og stígar við Fláajökul 7.300.000
Stykkishólmsbær  Súgandisey  5.700.000
Fjarðabyggð  Hólmanes friðland og fólkvangur milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar  5.000.000
Framkvæmdasjóður Skrúðs Þjónustuhús við Skrúð í Dýrafirði 5.000.000
Skaftárhreppur  Fjarðárgljúfur - uppbygging innviða  5.000.000
Svf. Ölfuss Reykjadalur 2013 5.000.000
     
Seyðisfjarðarkaupstaður Landamærahöfnin á Seyðisfirði - Markaðstorg og almenningsgarður  4.000.000
Þrísker ehf  Frystihúsið í Flatey á Breiðafirði  3.700.000
Umhverfisstofnun  Hugmyndasamkeppni fyrir Skútustaðagíga (hönnun og skipulag)  3.650.000
Sveitarfélagið Hornafjörður  Jöklaleiðin - Göngustígar og umhverfisbætur vestan Jökulsárlóns 3.600.000
Kötlusetur ses  Sólheimajökull  3.000.000
Rangárþing eystra  Skipulagsgerð og framkvæmdir við Hamragarða og nærumhverfi  3.000.000
Rangárþing ytra  Rammaskipulag Fjallabaks  3.000.000
Rangárþing ytra  Deiliskipulag Landmannalauga - Undirbúningur undir samkeppni 3.000.000
Byggðasafn Skagfirðinga  Glaumbær í Skagafirði – skipulag og hönnun safnsvæðis 2.550.000
Ferðaþjónustan Reykjanes  Reykjanes - Vatnavinir Vestfjarða  2.500.000
     
Sandgerðisbær  Gönguleiðir kringum Sandgerðistjörn  2.000.000
Kötlusetur ses  Víkurfjara  1.900.000
Umhverfisstofnun   Deiliskipulag fyrir Gullfoss  1.800.000
Ferðamálasamtök Suðurnesja  Þjónustuhús við Valahnúk Reykjanesi  1.500.000
Grindavíkurbær  Húshólmi í Ögmundarhrauni - Bætt aðgengi að minjum 1.500.000
Landeigendur Reykjahlíðar ehf.  Göngupallar/stígar á Hverarönd austan við Námaskarð  1.500.000
Reykjavíkurborg - Viðey Bætt aðgengi fatlaðra í Viðey 1.500.000
Umhverfisstofnun  Deiliskipulag og framkvæmdir við Hverfjall (Hverfell) í Mývatnssveit 1.500.000
Vesturbyggð og Umhverfisstofnun Fullnaðarhönnun við áningastaði á Bjargtanga  1.500.000
Rangárþing eystra  Skipulag og uppbygging stíga við Skógafoss  1.350.000
Snæfellsbær Útivistarstígur og áningarstaðir milli Rifs og Ólafsvíkur 1.175.000
Langanesbyggð  Upplýsingareitur á Þórshöfn  1.120.000
Gunnarsstofnun  Skriðuklaustur - aðgengi fyrir alla  1.100.000
Síldarminjasafn Íslands ses.  Síldarminjasafnið á Siglufirði - Fegrun umhverfis og bætt aðgengi 1.100.000
Hafnarfjarðarbær  Seltún - öllum til sóma  1.000.000
Sandgerðisbær  Aðgengi að Stafnesvita  1.000.000
Vinir Þórsmerkur  Viðhald gönguleiða á Þórsmerkursvæðinu  1.000.000
Kötlusetur ses  Dyrhólaey  900.000
Ísafjarðarbær  Göngustígakerfi Ísafjarðarbæjar - Hönnun og skipulag 750.000
Hrunamannahreppur  Aðgengi að Gullfossi austanmegin  700.000
Rangárþing eystra  Aðgengi að Gluggafossi  700.000
Vestmannaeyjabær  Fyrir og eftir gos - merkingar  600.000
Kötlusetur ses  Hjörleifshöfði  550.000
Dalvíkurbyggð  Umhverfi- og útivist í Dalvíkurbyggð  500.000

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta