Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Makrílkvótinn minnkaður um 15%

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hefur ákveðið makrílkvótann fyrir árið 2013. Kvótinn er minnkaður um 15% frá síðasta ári og er það í samræmi við veiðráðgjöf Alþjóða hafrannsóknarráðsins ICES. Nemur kvótinn þar með alls 123.182 tonnum á þessu ári.

Árið 2012 er áætlað að heildarveiði Evrópusambandsins, Noregs, Íslands, Færeyja og Rússlands  á makríl hafi verið 920 þúsund tonn og nam veiðihlutur Íslands um 16%. Færeyjar og Rússland hafa enn ekki gefið út makrílkvóta vegna ársins 2013, en hlutur Íslands mun haldast um 16% ef báðar þjóðirnar minnka sína veiði um 15%, eins og Noregur, ESB og nú Ísland hafa gert.

„Ákvörðun Noregs og ESB um að úthluta sér einhliða liðlega 90% af ráðlagðri veiði læsir málið inni í óbreyttri stöðu“ segir Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. „Við getum ekki einir lækkað okkar hlutdeild meðan ekki nást sanngjarnir samningar, en á það leggjum við áfram mikla áherslu. Við núverandi aðstæður er því þessi ákvörðun næsta sjálftekin.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta