Ný reglugerð um stjórn hrognkelsaveiða
Undirrituð hefur verið reglugerð um stjórn hrognkelsaveiða 2013 í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Megin breytingin frá reglugerð um stjórn hrognkelsaveiða 2012 er að nú eru grásleppuveiðileyfi hvers báts gefin út til 20 samfelldra veiðidaga í stað 50 á síðasta ári. Hér skal þó vísað til þess að endanleg ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar um fjölda veiðidaga og magn birtist 20. mars 2013 og því getur þessi tala breyst.
Að fenginni tillögu Landssambands smábátaeigenda hefur verið ákveðið að grásleppuvertíðin hefjist ekki fyrr en 20. mars á fyrstu svæðum þar sem heimilt er að hefja veiðar.
Að hámarki er hverjum bát nú heimilt að hafa 200 net í sjó og er það breyting frá fyrri árum þar sem hámarksfjöldi neta á hvern lögskráðan mann var 100 en á bát samtals 300.