Hver verður framtíð í orkutækni á Norðurlöndum? Ný skýrsla frá Alþjóða orkumálastofnuninni
Norrænu ríkin standa frammi fyrir fjölmörgum áskorunum á næstu áratugum ef þau markmið, sem löndin hafa sett sér um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, eiga að nást. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða orkumálastofnunarinnar (IEA) um framtíð norrænna orkukerfa.
Skýrsla Alþjóða orkumálastofnunarinnar var unnin í samstarfi við fjölmargar leiðandi rannsóknarstofnanir á Norðurlöndum, þar á meðal Háskóla Íslands, og Norrænar orkurannsóknir (Nordic Energy Research), undirstofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.
Skýrslan „Nordic Energy Technology Perspectives“ er afrakstur samstarfs margra leiðandi rannsóknarstofnana á Norðurlöndum, þar á meðal Háskóla Íslands, Norrænar orkurannsóknir (Nordic Energy Research), starfsmanna Norrænna orkurannsókna og Alþjóða orkumálastofnunarinnar (IEA- International Energy Agency).
Skýrslan á vef Alþjóða orkumálastofnunarinnar
Alþjóða orkustofnunin gefur annað hvert ár út upplýsingar um orkutækni í heiminum en þetta er í fyrsta skipti sem slík skýrsla er gefin út fyrir afmörkuð svæði eins og Norðurlöndin. Í skýrslunni er brugðið upp sviðsmyndum af því hvernig Ísland og hin norrænu ríkin geta komið á orkukerfi sem eykur ekki kolefnislosun (carbon-neutral) fyrir árið 2050. Þar er jafnframt bent á fjölmargar breytingar sem vinna þurfi að í norrænu samfélögum til þess að koma í veg fyrir að hitastig í heiminum hækki ekki meira en um tvær gráður fram til ársins 2050.
Mikill fengur er af þessari útgáfu fyrir okkur hér á landi, því þó svo Ísland sé aðili að OECD, sem Alþjóða orkustofnunin heyrir undir, þá erum við ekki aðilar að IEA og því er okkar orkutölfræði ekki alltaf með í samanburði eins og er að finna í skýrslunni.
Í skýrslunni er bent á að norrænu ríkin þurfi að hætta algjörlega að nýta jarðefnaeldsneyti til rafmagnsframleiðslu en í staðinn að auka hlut m.a. vindorku. Þar er miðað við að hlutur hennar aukist úr þremur prósentum, eins og hann er í dag, í 25 prósent árið 2050. Mikilvægur þáttur í því sé að bæta innviði raforkukerfa. Þá segir í skýrslunni að ef orkuverð reynist hagstætt geti norrænu ríkin flutt út á bilinu 50-100 terawattsstundir árlega þegar til lengri tíma er litið.
Bent er á í skýrslunni að til þess að draga úr orkuþörf á Norðurlöndum um sjö prósent milli áranna 2010 og 2050 þurfi umtalsverðar breytingar á orkunotkun bæði á heimilum, fyrirtækjum, í iðnaði og samgöngum. Þannig þurfi að draga úr orkunotkun á hvern fermetra um 35% frá því sem nú er og þá verði að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda í iðnaði með því meðal annars að nýta nýjar aðferðir til að beisla og geyma í auknum mæli það koltvíoxíð (Carbon Capture and Storage (CCS)) sem streymi frá verksmiðjum.
Mestra breytinga sé þó þörf á samgönguháttum Norðurlandabúa þar sem draga verði úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda um 80-90 prósent fram til ársins 2050. Þetta þýði að sala á rafmagnsbílum verði að tvöfaldast á hverju ári næsta áratuginn þannig að þeir skipi 30% bílaflota Norðurlanda árið 2030 og 90% árið 2050. Þá verði lífeldsneyti að standa undir farartækjum í flutningastarfsemi og hugsanlegt sé að norrænu þjóðirnar þurfi að flytja inn lífmassa vegna þess.