Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Fyrstu vindmyllur Landsvirkjunar gangsettar í hvínandi roki

Vindmylla, ráðherra og góðir gestir
Vindmylla, ráðherra og góðir gestir

Í gær voru fyrstu tvær vindmyllur Landsvirkjunar gangsettar í glampandi sól og viðeigandi roki. Vindmyllurnar eru staðsettar við Búrfell og er hvor um sig 900 kW en samanlögð áætluð raforkuvinnsla þeirra er um 5,4 GWst á ári. Sú orkuvinnsla svarar orkuþörf um 1.200 heimila.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, sagðist í ræðu sinni fagna þessu framtaki Landsvirkjunar sem hann vonaði að myndi takast vel. Ráðherra hrósaði framsýni og metnaði fyrirtækisins með þessu verkefni og kvað Landsvirkjun vera til fyrirmyndar að feta þessa braut. Að lokinni ræðu lét ráðherra gangsetja vindmyllurnar.

Hörður Arnarson sagði við tilefnið að eftirspurn eftir endurnýjanlegum orkugjöfum í heiminum hafi stóraukist og að ákveðin tímamót séu í orkuvinnslu á Íslandi við tengingu vindmyllanna tveggja inn á raforkukerfi Íslendinga. „Litið til framtíðar gæti vindorka orðið þriðja stoðin í orkukerfi Landsvirkjunar, ásamt vatnsafli og jarðvarma. Áhugavert er að athuga hvernig vindorka nýtist Íslendingum í samspili með vatnsorku en sveigjanleiki vatnsorkunnar getur aukið verðmæti vindorkunnar“.

Rauntíma upplýsingar um raforkuvinnsluna, vindstig og vindátt á Hafinu, fyrir ofan Búrfell þar sem vindmyllurnar eru staðsettar, eru birtar á heimasíðu Landsvirkjunar og gefst þannig almenningi tækifæri til að fylgjast með þeim frá degi til dags. Sjá nánar hér:

Nánar um vindmyllurnar:
Vindmyllurnar tvær eru hluti af rannsóknar- og þróunarverkefni á hagkvæmni vindorku. Á næstu misserum munu rannsóknir snúast um rekstur við séríslenskar aðstæður svo sem: áhrif af ísingu, skafrenningi, ösku, sandfoki ásamt áhrifum á dýralíf og íslenskt samfélag. Auk þess verður til almenn rekstrarreynsla sem byggja má á, ef farið verður í uppbyggingu á vindorku á Íslandi.

Líkt og öll stór mannvirki hafa vindmyllur óhjákvæmileg áhrif á ásýnd umhverfisins. Varanleg áhrif á heildarásýnd umhverfisins eru þó ekki mikil í samanburði við aðra virkjanakosti. Vindmylla sem tekin er niður skilur nánast engin ummerki eftir sig.
Þetta svæði, sem gengur undir nafninu „Hafið“, var valið þar sem náttúruleg vindgöng liggja um svæðið og vindhraði í 55 metra hæð er að jafnaði 10-12 metrar á sekúndu. Jarðstrengur lá fyrir um svæðið sem vindmyllurnar hafa nú verið tengdar við eru þær nálægt starfsstöð Landsvirkjunar í Búrfelli. Starfsfólk Búrfellsvirkjunar mun annast daglegan rekstur vindmyllanna.

Vindmyllurnar eru framleiddar af þýska fyrirtækinu Enercon en undirritaðir voru samningar um kaup á þeim í júní á síðasta ári. Enercon sérhæfir sig í framleiðslu gírlausra vindmylla til notkunar á landi. Kostur gírlausra vindmylla er sá að rafallinn framleiðir rafmagn við færri snúninga en við það eykst líftími vélarinnar og orkutap og hljóðmengun minnkar.
Vindmyllurnar eru hvor um sig 900 kW en samanlögð áætluð raforkuvinnsla þeirra er um 5,4 GWst á ári. Sú orkuvinnsla svarar orkuþörf um 1.200 heimila. Vindmyllurnar ná fullu afli við 15 metra vindhraða á sekúndu en stöðvast af öryggisástæðum ef vindur fer upp fyrir 34 metra á sekúndu.

Mastur vindmyllanna er stálrör sem mjókkar upp. Þvermál við jörð er um 3,5 metrar og tæpir 2 metrar við topp. Efst á mastrinu er framleiðsluhluti rafstöðvarinnar, hverfill og rafali. Í neðsta hlutanum er ýmiss stjórnbúnaður, rofar og spennar.

Hæð mastursins er 55 metrar og hver spaði er um 22 metrar á lengd. Þegar spaðinn er í efstu stöðu er því heildarhæð vindmyllunnar 77 metrar sem er í aðeins meiri hæð en Hallgrímskirkjuturn.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta