Hoppa yfir valmynd
27. mars 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Menningarlandið 2013 – framkvæmd og framtíð menningarsamninga

Menningarlandið 2013
Menningarlandið 2013

Hvers virði er öflugt menningarstarf fyrir samfélagið? Hver er reynslan af menningarsamningum ríkis og samtaka sveitarfélaga? Hafa upphafleg markmið sem lágu að baki samningunum náðst? Hvaða áhrif hafa breytingar í tengslum við sóknaráætlanir landshluta á menningarsamninga og starfsemi menningarráða? Hvernig er hægt að tryggja að úthlutun opinberra fjármuna til list- og menningartengdra verkefna sé faglega unnin? Hvaða þýðingu hefur hin nýja menningarstefna sem Alþingi samþykkti á dögunum?

Þessar spurningar og margar aðrar verða ræddar á ráðstefnunni Menningarlandið 2013 – framkvæmd og framtíð menningarsamninga, sem haldin verður á Kirkjubæjarklaustri dagana 11.-12. apríl nk.

Að ráðstefnunni standa mennta- og menningarmálaráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Menningarráð Suðurlands í samstarfi við önnur menningarráð landsbyggðarinnar. Megintilgangur hennar er að ræða framkvæmd og framtíð menningarsamninga ríkis og sveitarfélaga, sem og samstarf ríkis og sveitarfélaga við menningarráðin, sem stofnuð hafa verið um land allt á undanförnum árum í kjölfar menningarsamninganna. Samningarnir, sem eru sjö talsins í jafnmörgum landshlutum, fela í sér markvissan stuðning ríkissjóðs við menningarstarf og menningarferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði. Menningarsamningarnir renna allir út á þessu ári og því þarf að meta reynsluna af þeim til að geta gert áætlanir um framhaldið, m.a. með tilliti til sóknaráætlana landshluta.

Allir þeir sem með einum eða öðrum hætti tengjast menningarstarfi og menningarferðaþjónustu á Íslandi eru hvattir til að mæta og taka þátt. Skráningarfrestur er til og með föstudeginum 5. apríl.

Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning er á  vef Sambands íslenskra sveitarfélaga


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta