Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Gisting og leyfismál: Er ekki örugglega allt á hreinu?

Að gefnu tilefni er bent á að rekstur gistingar er leyfisskyld starfsemi enda mikil ábyrgð að bjóða gistingu án þess að hafa t.d. brunavarnir í lagi.

Gististaðir teljast staðir þar sem boðin er gisting til lengri eða skemmri tíma gegn endurgjaldi. Á þetta við um heimagistingu, gistingu í íbúðum, sumarhúsum, hótelum, gistiheimilum og gistiskálum.

Því er þeim sem bjóða gistingu bent á að afla tilskilinna leyfa þegar í stað.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út leyfi í umdæmi hans en sýslumenn á öðrum svæðum.
                


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta