Hoppa yfir valmynd
3. maí 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Lán Byggðastofnunar í erlendri mynt dæmd lögleg

Byggðastofnun
Byggðastofnun

Hæstiréttur úrskurðaði fimmtudaginn 2. maí 2013, að lán sem Byggðastofnun veitti í erlendri mynt væri löglegt. Lánið var veitt Samvirkni ehf. á Akureyri í febrúar 2008 og var í japönskum yenum. Hæstiréttur staðfestir þar með að Byggðastofnun hafi staðið rétt að lánveitingum í erlendum myntum.  Dóm Hæstaréttar má lesa hér.

Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni, m.a. með því að veita lán til uppbyggjandi verkefna víða um land. Rúmlega 60% af lánum stofnunarinnar eru í erlendri mynt og nýfallinn dómur Hæstaréttar er fordæmisgefandi fyrir um 90% þeirra. Skilmálar um 10% lánanna í erlendri mynt eru með öðrum hætti og nú er rekið mál fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra um lögmæti þeirra.

Byggðastofnun mun hér eftir sem hingað til leitast við að koma til móts við vanda skuldara sem lent hafa í vanda vegna hækkunar erlendra lána.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta