Hoppa yfir valmynd
3. maí 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Meniga hlaut Vaxtarsprotann 2013 og Steingrímur J. Sigfússon fékk viðurkenningu

Meniga
Meniga

Samtök sprotafyrirtækja og Samtök iðnaðarins veittu í dag fyrirtækinu Meniga ehf. Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á síðasta ári. Fyrirtækið nær tífaldaði sölutekjur sínar milli áranna 2011 og 2012.

Fyrirtækin Controlant, Nox Medical og Iceconsult fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt.

Við sama tilefni fékk. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sérstaka viðurkenningu fyrir gott starf við uppbyggingu nýsköpunar- og sprotaumhverfis.

Vaxtarsprotinn er viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknamiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Sjá nánar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta