Rækjuveiðar í sunnanverðum Breiðafirði heimilaðar frá miðnætti
Að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið heimilað rækjuveiðar í sunnanverðum Breiðafirði, vestan Krossnesvita fram til 1. júlí 2013.
Veiðarnar má ekki stunda með stærri skipum en 105 brl og skal varpa skipanna búin seiðaskilju eins og hún er skilgreind í reglugerðum frá ráðuneytinu.
Heimild til rækjuveiða á svæðinu gildir frá og með miðnætti 15. maí.
Athygli skal vakin á að samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er lagt til að svæðinu við Snæfellsnes (Kolluáll, Breiðafjörður og Jökuldjúp) verði lokað fyrir rækjuveiðum þegar 1.000 tonnum er náð. Fari rækjuafli á svæðinu yfir 1.000 tonn 2013 ákveður ráðherra hvort veiðar verði bannaðar á svæðinu.
Reglugerð um rækjuveiðar á Breiðafirði 2013.