Ríkisráðsfundir á Bessastöðum fimmtudaginn 23. maí 2013
Frá ríkisráðsritara
Ríkisráð Íslands verður kvatt saman til tveggja funda á Bessastöðum á morgun. Hefst sá fyrri kl. 11:00, þar sem annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur lýkur störfum. Seinni fundurinn hefst kl. 15:00 þar sem forseti Íslands mun skipa fyrsta ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.