Hoppa yfir valmynd
31. maí 2013 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí – desember 2013

Miðvikudaginn 27. maí 2013 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2013.

 

Eitt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 1.650 stk. á meðalverðinu 107 kr./stk. Hæsta boð var 122 kr./stk. en lægsta boð var 91 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 107 kr./stk.

 

Eitt tilboð barst um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 2.160 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.  Hæsta boð var 123 kr./stk. en lægsta boð var 91 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.

 

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.000 stk., á meðalverðinu 7 kr./stk.  Hæsta boð var 20 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 6.000 stk. á meðalverðinu 7 kr./stk.

 

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 66.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2013

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   1.650 Húsasmiðjan / Blómaval

 

Aðrar pottaplöntur júlí – desember 2013

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
2.160 Húsasmiðjan / Blómaval

 

Tryggðablóm júlí – desember 2013

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
                 6.000 Samasem ehf

 

(Annars) afskorin blóm júlí – desember 2013

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
 6.000 Gróðurvörur ehf
20.000 Grænn markaður ehf
40.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 31. maí  2013  

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum