Hoppa yfir valmynd
3. júní 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Landbúnaðarráðherra heimsækir bændur á Norðurlandi

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimsækir í dag bændur á Norðurlandi  til að kynna sér stöðu mála en ljóst er að bændur á stórum landssvæðum allt frá Ströndum og yfir til Austurlands standa frammi fyrir miklum vanda vegna kals í túnum og ótíðar í vetur og vor.

Sigurður Ingi flaug í morgun ásamt Sindra Sigurgeirssyni formanni Bændasamtakanna til Sauðarkróks. Þaðan munu þeir keyra út í Fljótin, taka hús á bændum í Svarfaðardal og Eyjafirði og enda yfirreiðina í Þingeyjarsýslum.

Ráðherra mun hitta að máli bændur og ráðunauta en ljóst má vera að ástandið er víða mjög slæmt og er talið að á einstaka bæjum sé allt að 90% kal í túnum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta