Hoppa yfir valmynd
7. júní 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hittir sjávarútvegsstjóra ESB

Í gær, 6. júní var haldinn í Reykjavík fundur Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB. Meginmál fundarins var staða mála í  deilu Íslands, Færeyja, Noregs og ESB um nýtingu makrílstofnsins í Norðaustur Atlantshafi.

Sjávarútvegsstjórinn óskaði fyrir fáum dögum eftir fundinum, sem ráðherrann varð fúslega við. Áttu þau hreinskiptnar en vinsamlegar viðræður um vandann sem hlutaðeigandi ríki standa frammi fyrir og útskýrði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra málstað Íslands. Bæði lögðu áherslu á nauðsyn þess að ná samkomulagi um sjálfbæra nýtingu á þessum verðmæta fiskistofni. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagði í því efni þunga áherslu á að samkomulag yrði að byggjast á viðurkenningu gagnaðila á ríkum rétti Íslands vegna mikillar makrílgengdar í íslenskri efnahagslögsögu. Urðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sjávarútvegsstóri ESB ásátt um að leita allra leiða til að samningaferlinu verði fljótlega fram haldið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta