Stefnuræða forsætisráðherra
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld, 10. júní 2013. Forsætisráðherra sagði að bjartsýni, kjarkur og þor væru forsendur framfara og árangurs.
„Mikilvægt er að við sýnum nú að við búum við úthald og kjark og leitum allra mögulegra leiða til að leiðrétta skuldir heimilanna og bæta hag þeirra. Við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess, við eigum að veita fyrirtækjum hvata til að skapa störf, styðja nauðsynleg fjárfestingaverkefni og auka umhverfisvæna orkunýtingu til að byggja upp atvinnu og aflétta fjármagnshöftum. Við eigum að standa með fólkinu í landinu og taka ákvarðanir sem leysa raunveruleg vandamál þess frá degi til dags. Til þess erum við kjörin“, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni sem flutt var á Alþingi í kvöld.